Fara í aðalefni
Jólavörurnar eru komnar í vefverslunina Skoða jólavörur

Hafnarfjörður

Þema Snyrti- og fótaaðgerðastofa

Þema er rótgróin snyrti- og fótaaðgerðastofa við Dalshraun 11 í Hafnarfirði, starfrækt frá árinu 2005. Fimm reyndar fagkonur sinna fótsnyrtingu, fótaaðgerðum og almennri snyrtingu í hlýlegu og persónulegu umhverfi.

Þema Snyrti- og fótaaðgerðastofa

Ný meðferð: Eye Lift

Öflug sérmeðferð fyrir augnsvæðið sem vinnur gegn hrukkum, þrota og baugum. Einstök tækni, vöðvaþjálfun með Hydradermie meðferðartæki. Augnsvæðið fær lyftingu og það dregur úr fínum línum, þrota og baugum. Meðferðin styrkir augnsvæðið og endurnýjar frumustarfsemi húðarinnar.

Er kominn tími á fótaaðgerð?

Með fótaaðgerð er átt við meðhöndlun fótameina, til dæmis að fjarlægja harða húð, vörtur og líkþorn, klippa og hreinsa neglur, þynna óeðlilega þykkar neglur, sérsmíða spangir á niðurgrónar neglur og veita fræðslu og faglega ráðgjöf. Fótaaðgerðafræðingar sjá einnig um fót- og göngugreiningu ásamt innleggjagerð. Starfsheitið er lögverndað.

Guinot meðferðir

Hydradermie

Mjög árangursrík raka- og djúphreinsunarmeðferð fyrir andlit, augu, háls og bringu. Örvar efnaskipti húðar, þéttir, stuðlar að rakajafnvægi og gefur góðan árangur fyrir bóluhúð. Hentar öllum aldurshópum.

Hydra Peeling ávaxtasýrumeðferð

Húðin verður mýkri, frísklegri og áferðarfallegri. Ávaxtasýrugel, nudd með frumuendurnýjandi serumi og C vítamín maski.

Age Summum

Vinnur gegn ótímabærum aldursbreytingum. Inniheldur hreint C vítamín, örvar framleiðslu kollagens og er andoxandi. Húðin endurheimtir frískleika og ljóma.

Starfsfólk

Starfsfólk

Eva Margrét

Eva Margrét

Eigandi, löggildur fótaaðgerðafræðingur og meistari í snyrtifræði

Sigrún Bates

Sigrún Bates

Löggildur fótaaðgerðafræðingur

María Björk

María Björk

Snyrtifræðingur

Sigrún

Sigrún

Löggildur fótaaðgerðafræðingur

Ester

Ester

Löggildur Fótaaðgerðafræðingur

Kristín Ottesen

Móttökuritari og aðstoðarmanneskja

Finndu okkur

Staðsetning og opnunartímar

Opnunartímar

Mán–Fim09:00–17:00
Föstudagur09:00–16:00
Lau–SunLokað

Heimilisfang

Dalshraun 11, Hafnarfjörður

Sendu okkur línu

Hafa samband

Hafðu samband og við svörum eins fljótt og auðið er.