Súrefnismettun og hreinsun fyrir húðina. Óæskilegt magn úrgangsefna getur sest á yfirborð húðar og dregið úr frískleika hennar, húðin missir ljóma sinn. Þættir sem geta haft áhrif eru t.d. mengun, sýklar, ryk, lífstíll, streita, svefnleysi, mataræði o.fl. Eftir 60 mín meðferð eykst súrefnisupptaka húðar og húðin hreinsuð af úrgangsefnum. Detoxygene meðferð er góður undanfari fyrir aðrar GUINOT andlitsmeðferðir þar sem húðin verður móttækilegri fyrir virkum efnum. Húðin starfar eðlilega á ný, er frískleg, mjúk, hrein og ljómi hennar hefur aukist.
