Með aldrinum missir húðin stinnleika sinn og útlínur slakna. Einstök tækni, tvíþætt virkni meðferðar, sogæðaörvun og vöðvaþjálfun á andliti með Hydradermie meðferðartæki. Hydradermie Lift mótar og stinnir andlitsvöðvana. Á aðeins nokkrum mínútum verður húðin stinnari, sléttari og frísklegri. Eftir fyrstu meðferð muntu sjá sýnilegan árangur. Hrukkur á yfirborði og fínar línur hafa minnkað. Þetta er vöðvaþjálfun fyrir andlitið ("body building"). Fyrir góðan árangur er mælt með 6 til 10 skiptum.
